Grétar Þór Eyþórsson íþróttamaður Vestmannaeyja 2014

15.jan.2015  21:43

Dagur Arnarsson og Sabrína Lind Adolfsdóttir íþróttamenn æskunnar

 Í kvöld var krýndur Íþróttmaður Vestmannaeyja fyrir árið 2014. Samkoman var nú haldin í Höllinni og var mæting góð. Grétar Þór Eyþórsson handknattleiksmaður og Íslandsmeistari með ÍBV varð fyrir valinu. Íþróttamenn æskunnar voru einnig krýndir og urðu þau Sabrína Lind Adolfsdóttir knattspyrnukona og Dagur Arnarsson handknattleiksmaður fyrir valinu. Einnig krýndi hvert félag innan Íþróttabandalags Vestmannaeyja sinn íþróttamann ársins auk þess sem ýmsar viðurkenningar voru veittar.