Eva Aðalsteinsdóttir var í dag valin í landsliðshóp U-15 ára í handbolta en valdar voru 27 stúlkur sem eiga leika tvo vináttulandsleiki gegn Skotum en leikirnir fara fram hér á landi um næstu helgi. Þjálfararnir Hrafnhildur Skúladóttir og Stefán Arnarsson skipta hópnum í tvennt og á Eva að leika seinni leikinn sem fram fer á sunnudeginum.
IBV óskar Evu innilega til hamingju með þennan árangur.