Gríðarlegur ferðakostnaður hjá ÍBV-íþróttafélagi.

05.jan.2015  13:58
Nú er búið að taka saman ferðakostnað ÍBV-íþróttafélags fyrir árið 2014.  Eingöngu er um að ræða ferðir í Íslandsmót en ekki í bikarkeppni, æfingaleiki, deildar og Lengjubikar, Faxaflóamót ofl.
Kostnaður félagsins er kr. 56.500.000-  Ferðajöfnunarsjóður kemur til móts við þennan kostnað en í ár má búast við að ÍBV fái nálægt kr. 6.000.000-
Til þess að standa straum af þessum kostnaði hefur ÍBV notið mikillar góðvildar einstaklinga og fyrirtækja sem og Vestmannaeyjabæjar.
Án allra þessara stuðningsaðila og sjálfboðaliða félagsins gætu flokkar félagsins ekki tekið þátt í þessum mótum.
ÍBV vill koma á framfæri innilegum nýjárskveðjum og í leiðinni þakka öllum kærlega fyrir stuðninginn í fyrra.
ÁFRAM ÍBV.