Þorvaldur Örlygsson þjálfari U-19 ára landsliðs karla í knattspyrnu valdi í gær Devon Má Griffin til æfinga með liðinu strax á nýju ári. Æfingarnar fara fram í Reykjavík. Þá valdi Freyr Sverrisson þrjá leikmenn ÍBV til æfinga með U-16 ára landsliðinu. Freyr valdi þá Daníel Má Sigmarsson, Guðlaug Guðmundsson og Þormar Elvarsson. Æfingarnar fara fram í Reykjavík strax á nýju ári.
ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur.