Tvær frá ÍBV á æfingar hjá U-15 hjá HSÍ.

15.des.2014  08:51
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Stefán Arnarsson þjálfarar U-15 ára landsliðs kvenna í handbolta hafa valið 34 manna æfingahóp sem æfir í Reykjavík 20 og 21.desember.  Þau völdu tvær stúlkur frá ÍBV, þær Tönju Jósefsdóttur og Evu Aðalsteinsdóttur.
Hópurinn æfir svo aftur saman í janúar.
IBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.