Tveir frá ÍBV í U-21.

01.des.2014  11:28
Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari U-21 landsliðs Íslands í knattspyrnu valdi í dag tvo leikmenn ÍBV til æfinga með liðinu.  Eyjólfur valdi þá Jón Ingason og Gunnar Þorsteinsson í æfingahópinn en hópurinn æfir í Reykjavík um næstu helgi.
Þess má til gamans geta að aðstoðarþjálfari liðsins er eyjamaðurinn Tómas Ingi Tómasson fyrrum markahrókur ÍBV.
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.