Kvennadeildiin kom færandi hendi

14.nóv.2014  09:07
Kvennadeild ÍBV íþróttafélags kom færandi hendi í síðustu viku og gáfu meistaraflokkum félagsins peninga til tækjakaupa í þreksali félagsins. Einnig fékk akademía ÍBV að njóta gjafmildi þeirra því þær færðu henni einnig peninga til kaupa á aðföngum.
Augljóst er að sjálfboðaliðar félagsins eru mjög mikilvægir því þær hafa safnað ellefu hundruð þúsundum með vinnu sinni á fótboltamótum félagsins.
Aðalstjórn ÍBV þakkar þeim stöllum fyrir óeigingjarnt starf fyrir félagið og mikinn drifkraft í að fá aðra með sér í vinnu.
 Á myndinni eru fyrir hönd kvennadeildar: Þóra, Guðný, Laufey, Sigga, Hrönn, Sólrún og Jóna, fyrir hönd félagsins eru þau Ian, Þórhildur, Ester og Maggi.