Þó nokkuð af iðkendum frá ÍBV hafa verið valin á landsliðsæfingar hjá KSÍ undanfarið.
Þær Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, Sóley Guðmundsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir æfðu allar með landsliði U-23 ára um síðustu helgi.
Sabrína Lind Adolfsdóttir æfði með landsliði U-19 einnig um síðustu helgi.
Bríet Stefánsdóttir æfði með landliði U-17 ára.
Þá eru fjórir drengir boðaðir á æfingar nú um helgina.
Devon Már Griffin mun æfa með landliði U-19 ára.
Felix Örn Friðriksson, Sigurður Arnar Magnússon og Friðrik Hólm munu æfa með landsliði U-17 ára.
Þá lék Brynjar Gauti Guðjónsson mjög vel með landsliði U-21 ára í umspilsleikjunum gegn Dönum.
ÍBV óskar þessu efnilega knattspyrnufólki innilega til hamingju með þennan árangur.