Í dag skrifaði Ian David Jeffs undir tveggja ára samning við félagið. Samningur þessi er margþættur en í honum kemur fram að Ian verður þjálfari meistaraflokks kvenna á komandi tímabili, leikmaður meistaraflokks karla, skólastjóri akademíu félagsins sem og þjálfari 6. flokk kvenna.
Það er mikill fengur fyrir félagið að fá Ian inn í nær allar deildir félagsins en Ian er eyjapeyji þrátt fyrir að hafa fæðst á Englandi.
Ian hefur stýrt akademí félagsins frá því í ágúst 2013 og einnig hefur hann þjálfað í yngri flokkum félagsins í nokkur ár.
Ian hefur lokið KSÍ A gráðu sem og er íþróttafræðingur frá HR.
Ian hefur spilað á Íslandi frá því árið 2003 og lengst af með ÍBV en einnig með Val og Fylki.
Ian var Jóni Óla innan handar við þjálfun meistaraflokks kvenna nú í sumar.