Sabrína Lind Adolfsdóttir æfði á dögunum með landsliði Íslands U-19 ára í knattspyrnu en æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir Evrópukeppnina í haust. Riðill Íslands verður leikin í Litháen í september þar sem Ísland leikur gegn heimastúlkum, Spánverjum og Króötum.
Þá var Brynjar Gauti Guðjónsson valin í U-21 árs landsliðið en það undirbýr sig nú fyrir leikinn gegn Armennum sem fram fer á Fylkisvelli þann 3.september og leikinn ytra gegn Frökkum þann 8.september.
ÍBV óskar þeim Brynjari Gauta og Sabrínu Lind innilega til hamingju með þennan árangur.