7.flokkur drengja í knattspyrnu fór heldur betur á kostum á Norðurálsmótinu sem haldið var á Akranesi um miðjan júní. Mótið er stærsta knattspyrnumót sem haldið er fyrir þennan aldursflokk. ÍBV gerði sér lítið fyrir og sigaði mótið með glæsibrag.
A-liðið sigraði fyrstu sjö leikina og gerði jafntefli í þeim síðasta.
B-liðið kom þjálfurum sínum mjög á óvart og endaði mjög ofarlega í mótinu.
ÍBV var stillt upp með tvö D-lið að þessu sinni sem bæði stóðu sig mjög vel.
F-liðið spilaði úrslitaleik gegn Njarðvík sem tapaðist naumlega.
Frábær árangur hjá þessum efnilegu peyjum.
Þjálfarar flokksins eru þeir Eysteinn Húni Haukson, Lárus Viðar Stefánsson, Einar Kristinn Kárason og Andri Freyr Björnsson.
ÍBV óskar þessum frábæru peyjum, þjálfurum og foreldrum þeirra innilega til hamingju með þennan árangur.
ÁFRAM ÍBV.