Um síðustu helgi fór fram útför hins mikla Vallarstjóra Sigga Valló. ÍBV-íþróttafélag stóð heiðursvörð Sigga til heiðurs og kvaddi þar með góðan dreng sem var mikill ÍBV-ari á viðeigandi hátt en heiðursvörðinn stóðu drengirnir í mfl, 2 og 3.flokki félagsins. Peyjarnir í Vallógenginu báru Vallarstjórann til grafar.
Sonur Sigga, Kristinn vildi koma á framfæri innilegu þakklæti til félagsins fyrir þá virðingu sem föður hans var sýnd í útförinni.
Minning þessa góða ÍBV-ara mun ávallt lifa.
ÁFRAM ÍBV.