Nú er komið að því að ganga frá greiðslu æfingagjalda fyrir 2014. Allir foreldrar þurfa að fara inn á síðuna ibv.felog.is og skrá sín börn til leiks hjá ÍBV íþróttafélagi. Á þessari síðu þarf einnig að ganga frá æfingagjöldum en í boði eru þrjár leiðir. Hægt er að millifæra inn á reikning félagsins, fá greiðsluseðil eða ganga frá greiðslum með kreditkorti.
Allar leiðbeiningar um skráningu er hægt að nálgast á heimasíðu félagsins ibvsport.is eða með því að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu.
Fyrir fyrsta barn kostar 59.000,-
Fyrir barn númer 2 kostar 41.300,- (15% afsláttur af fyrsta og öðru barni).
Fyrir barn númer 3 kostar 29.500,- (50% afsláttur af þriðja barni).
Fyrir barn númer 4 kostar 17.700,- (70% aflsáttur af fjórða barni).
Innifalið eru æfingar bæði í handknattleik og knattspyrnu, ÍBV treyjur fylgir með annað hvert ár. ÍBV greiðir einnig ferðakostnað í Íslandsmót hjá öllum flokkum. Þá fá börn sem æfa hjá félaginu frítt á alla meistaraflokksleiki félagsins.