Í dag voru valdir tveir úrtakshópar hjá HSÍ. Um er að ræða U-16 ára og U-18 ára landsliðsins.
Halldór Stefán Haraldsson og Gulli ÍBV-ari þjálfarar U-16 ára landsliðsins völdu þær Ástu Björt Júlíusdóttur og Þóru Guðnýju Arnarsdóttur í hópinn sinn.
Þá völdu þau Hilmar Guðlaugsson og Inga Fríða Tryggvadóttir þjálfarar U-18 ára landsliðsins þær Erlu Rós Sigmarsdóttur, Díönu Dögg Magnúsdóttur, Söndur Dís Sigurðardóttur og Örnu Þyrí Ólafsdóttur í sinn hóp.
Æfingarnar fara fram dagana 24-30.mars.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.