Þrír frá ÍBV á æfingar hjá KSÍ.

27.jan.2014  16:45
Kristinn R. Jónsson þjálfari U-19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu valdi í dag þá Jón Ingason og Atla Fannar Jónsson til úrtaksæfinga um næstu helgi.  22.leikmenn eru valdir í þetta sinn.  Æft verður á laugardagsmorgun og seinni part laugardags verður svo æfingaleikur.
Þá valdi Kristinn einnig æfingahóp hjá 1996 árgangi en þar valdi hann Sigurð Grétar Benónýsson og verður æfingaleikur á laugardag og  æfing á sunnudagsmorgun.  Í þessum hópi eru 20.leikmenn.
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.