Þeir Ívar Logi Styrmisson og Daníel Már Sigmarsson voru báðir valdir til úrtaksæfinga með árgangi "2000 en í þetta sinn voru valdir 74 drengir. Æfingarnar fara fram helgina 17-19.janúar í Kópavogi og í Garðabæ. Æft verður alla dagana en á laugardeginum verða tvær æfingar.
Þjálfari hópsins er Heimir Ríkharðsson.
ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur.