Þrír frá ÍBV á æfingar hjá KSÍ.

13.jan.2014  15:56
Í dag voru valdir þrír leikmenn ÍBV til æfinga í sínum aldurflokkum á vegum KSÍ.
Eyjamaðurinn Þorlákur Árnason valdi Devon Má Griffin til æfinga með U-17 ára landsliðinu sem undirbýr sig af kappi fyrir þátttöku í milliriðli EM sem fram fer í Portúgal í lok mars.
Þá valdi Freyr Sverrisson þá Sigurð Arnar Magnússon og Felix Örn Friðriksson til úrtaksæfinga með áragangi 1999 en 36 leikmenn voru valdir í þetta sinn.
Æfingarnar fara fram í Reykjavík dagana 18.og 19.mars n.k.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur.