Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum, heimavöllur ÍBV, hefur vakið athygli víða en hann er á nýjum topplista yfir þá velli í heiminum sem eru með flottasta umhverfið.
Völlurinn hefur áður verið á samskonar listum yfir heillandi fótboltavelli jarðarinnar en að þessu sinni er hann í áttunda sæti.
Misjafn er smekkur manna en hinn afar óvenjulegi Marina Bay leikvangur í Singapúr trónir á toppi listans.
Sá völlur er fljótandi á vatni og árlega er þar fjöldinn allur af fótboltaleikjum og öðrum íþróttaviðburðum.
Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: