Í dag skrifuðu fjórir uppaldir leikmenn ÍBV undir samning við félagið. Þórhildur Ólafsdóttir fyrrum fyrirliði liðsins sem snéri aftur í fyrra til ÍBV skrifaði undir samning ásamt þremur efnilegum leikmönnum þeim Díönu Dögg Magnúsdóttur, Magneu Jóhannsdóttur og Júlíönu Sveinsdóttur. Þá hafa ÍBV og Kristín Erna Sigurlásdóttir komist að samkomulagi um samning sem verður undirritaður á næstu dögum.
Í fréttatilkynningu félagsins lýsir stjórn knattspyrnudeildar ÍBV ánægju sinni með þessa samninga og bíður Þórhildi velkomna aftur heim. Þórhildur mun því aftur klæðast treyju nr. 9 eins og hún lék í á sínum tíma. Við höfum einnig boðið Þórhildi að taka við fyrirliðabandinu og er hún að hugsa sinn gang í þeim málum segir í tilkynningunni.
Díana Dögg spilaði aðeins í úrvalsdeildinni í fyrra og er reiknað með að hún stígi enn stærra skref í sumar. Þá hafa þær Júlíana og Magnea einnig fengið smjörþefin af því að leika með meistaraflokki en félagið býst við miklu af þessum efnilegu stúlkum í framtíðinni.
ÍBV óskar stúlkunum sem og knattspyrnudeild kvenna til hamingju með þessa samninga.
ÁFRAM ÍBV.