Ólafur þór Guðbjörnsson þjálfari U-19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu kvenna valdi í dag Sabrínu Lind Adolfsdóttur til æfinga um næstu helgi með liðinu. Æft verður tvisvar á laugardag en fyrri æfingin verður þrekpróf og svo verður æft einu sinni á sunnudag. Alls verða 31.stúlka valin til þessara æfinga sem fara fram í Reykjavík.
ÍBV óskar Sabrínu Lind innilega til hamingju með þennan árangur.