Gangan í kvöld

03.jan.2014  08:54

Nokkur atriði sem gott er að huga að fyrir kvöldið

  • Bíleigendur við Illugagötu og neðri hluta Höfðavegar hafi bíla sína ekki á götunni á gönguleiðinni.
  • Eyjamenn sem búa við gönguleiðina setji út friðarkerti.
  • Íbúar flaggi ÍBV fánum í tilefni dagsins.
  • Krakkar verði í jólasveinabúningum í göngunni - Stekkjastaur talaði um að þeir sem verða í búningum munu hafa forgang í að labba með sveinunum á malarvellinum.
  • Eyjamenn mæti merktir félaginu.
  • Foreldrar ræði við börn sín um notkun skotelda því eins og við öll vitum er mjög hættulegt að vera með skotelda þar sem margir eru.