Þeir Kristján Arason og Konráð Olavsson þjálfarar U-16 ára landsliðs Íslands í handbolta hafa valið 36 leikmenn til æfinga helgina 10-12.janúar. Leikmennirnir sem valdir eru til þessara æfinga eru þeir, Logi Snædal, Darri Gylfason, Breki Ómarsson, Andri Ísak Sigfússon og Friðrik Hólm. Æfingarnar fara fram í Mosfellsbæ, Garðabæ og í Laugardalshöll.
IBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur.