Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir markvörður ÍBV skrifaði undir nýjan 2.ára samning við félagið en samningur hennar rann út í október. Bryndís Lára var eftirsótt af öðrum félögum en valdi að leika áfram með ÍBV.
Þetta eru miklar gleðifréttir fyrir félagið en Bryndís Lára er búin að leika mjög vel undanfarin tvö leiktímabil með ÍBV og var kjörin leikmaður ársins árið 2012.
Stjórn deildarinnar vinnur nú að því hörðum höndum að klára leikmannamál fyrir næsta leiktímabil en liðið hefur leikið tvo æfingaleiki í haust. Fyrst sigraði liðið Hauka 3-1 með mörkum frá Þórhildi 2, Bryndís Hrönn 1. Og síðastliðin föstudag sigraði ÍBV lið Þróttar 4-0 með mörkum frá Þórhildi 2, Hlíf og Bryndís Hrönn.
ÁFRAM ÍBV.