Hilmar Guðlaugsson og Inga Fríða Tryggvadóttir völdu í dag 6 leikmenn ÍBV í 36 manna úrtakshóp hjá U-18 ára landsliði Íslands í handbolta. Hópurinn mun æfa saman milli Jóla og nýárs og í byrjun janúar ýmist í Reykjavík og á Selfossi. Leikmennirnir sem valdir voru eru þær Erla Rós Sigmarsdóttir, Arna Þyrí Ólafsdóttir, Díana Dögg Magnúsdóttir, Sóley Haraldsdóttir, Selma Rut Sigurbjörnsdóttir og Sandra Dís Sigurðardóttir.
IBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.