Þeir Halldór Stefán Haraldsson og Jón Gunnlaugur Viggóson völdu í dag 4 leikmenn ÍBV í 46 manna úrtakshóp hjá U-16 ára landsliði Íslands í handbolta. Hópurinn mun æfa saman milli Jóla og nýárs og einnig í byrjun janúar. Leikmennirnir sem valdir voru eru, Þóra Guðný Arnardóttir, Ásta Björt Júlíusdóttir, Kristín Rós Sigmundsdóttir og Sirrý Rúnarsdóttir.
ÍBV óskar þessum stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.