Atli Fannar og Jón Inga í U19, Devon í U17!

09.des.2013  16:05
Kristinn R.Jónsson þjálfari U-19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu hefur valið tvo leikmenn ÍBV til úrtaksæfinga með liðinu um næstu helgi.  Þetta eru þeir Jón Ingason og Atli Fannar Jónsson sem er nýgengin til liðs við ÍBV frá Breiðablik.
Þá valdi Þorlákaur Már Árnason þjálfari U-17 ára landsliðsins Devon Már Griffin til úrtaksæfinga með liðinu en þeir æfa einnig um næstu helgi.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur.