Þeir Kristján Arason og Konráð Olavsson þjálfarar U-16 ára landsliðs Íslands í handbolta hafa valið 5.leikmenn ÍBV alla úr árgangi 1998 til æfinga með landsliðinu. Þeir munu einnig leika tvo æfingaleiki gegn A-landsliði kvenna. Þessir leikmenn eru Andri Ísak Sigfússon, Logi Snædal, Darri Gylfason, Breki Ómarsson og Friðrik Hólm. Æfingarnar og leikirnir fara fram helgina 7-8.desember.
ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur.