Ólafur Þór Guðbjörnsson og Úlfar Hinriksson þjálfarar U-19 og U17.ára landsliðs Íslands í knattspyrnu hafa boðað þrjár stúlkur úr ÍBV til úrtaksæfinga helgina 7-8.desember.
Díana Dögg Magnúsdóttir, Ásta Björt Júlíusdóttir og Bríet Stefánsdóttir voru allar valdar. Þá var einnig Sandra Erlingsdóttir valin en þar sem hún býr erlendis fær hún sín tækifæri síðar.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.