Þrír frá ÍBV á æfingar hjá KSI.

25.nóv.2013  11:16
Eyjamaðurinn Þorlákur Árnason hefur valið Ásgeir Elíasson til úrtaksæfinga með U-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu.  Æfingarnar fara fram í Reykjavík um næstu helgi.
Þá valdi Gunnar Guðmundsson þjálfari U-19 ára landsliðs Íslands þá Kristinn Skæring Sigurjónsson og Sigurð Grétar Benónýsson til úrtaksæfinga sem einnig fara fram um næstu helgi á Reykjavíkursvæðinu.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.