Stefnumótunarfundur á fimmtudaginn kl. 17:00

19.nóv.2013  11:53

 21. nóvember

Stuðningsmenn, styrktaraðilar og fulltrúaráð

Allir stuðningsmenn ÍBV hvattir til að mæta. En til þess að tryggja að stuðningsmennirnir okkar mæti voru send út boðskort til nokkurra korthafa frá handknattleiksdeild og knattspyrnudeild sem og á fulltrúaráð ÍBV íþróttafélags. Einnig voru send út boðskort á þau fyrirtæki sem eru með heildarsamninga við félagið.

 

 

Við hjá félaginu erum að vinna að stefnumótunarmálum hjá okkur og til þess að klára þá vinnu þurfum við hjálp ykkar ÍBV-ara. Fundur þessi er hugsaður þannig að fundargestir skipta sér á borð og fara yfir styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri félagsins.

Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og hjálpa okkur við að gera gott íþróttafélag enn betra