Þeir Einar Guðmundsson og Sigursteinn Arndal þjálfarar U-18 ára landsliðs Íslands í handknattleik hafa valið Dag Arnarsson í landsliðshóp sinn sem tekur þátt í æfingamóti sem fram fer í Þýskalandi milli Jóla og Nýárs. Þessi sami hópur leikur svo í undankeppni EM sem fram fer í Svíþjóð 10-12.janúar 2014.
ÍBV óskar Degi innilega til hamingju með þennan árangur.