Eyjamenn á úrtaksæfingum og í landsliðsverkefnum

29.okt.2013  11:43
Elísa Viðarsdóttir er í hóp hjá A landsliðinu í knattspyrnu sem mætir Serbum á fimmtudaginn.
Kristinn Skæringur Sigurjónsson og Sigurður Grétar Benónýsson voru valdir á úrtaksæfingu hjá U19 ára landsliðinu í knattspyrnu.
Breki Ómarsson var valinn á úrtaksæfingu hjá U17 ára landsliðinu í knattspyrnu.
Andri Ísak Sigfússon, Breki Ómarsson, Darri Viktor Gylfason, Friðrik Hólm Jónsson og Logi Snædal Jónsson voru valdir í úrtakshóp fyrir U16 ára landsliðið í handbolta.
Dagur Arnarsson var valinn í úrtakshóp U18 ára landsliðsins í handbolta.
 
Um helgina voru þessar stelpur á úrtaksæfingum í handbolta
Erla Rós, Arna Þyrí, og Díana Dögg voru með  U18 ára landsliðinu.
Drífa Þorvaldsdóttir í U20 ára landsliðinu.
Ásta Björt Júlíusdóttir og Þóra Guðný Arnarsdóttir í U16 ára landsliðinu.
Í knattspyrnu voru tvær stúlkur á úrtaksæfingum en það voru þær
Guðrún Bára Magnúsdóttir U19 og Sigríður Sæland U17
 
Flottir fulltrúar ÍBV íþróttafélags þarna á ferð.