Kvennalið ÍBV leikur sinn síðasta leik á þessu leiktímabili í dag er þær sækja heim lið Þórs/KA. Leikurinn hefst kl. 16.15 og verður sýndur á sjónvarpsstöð Þórsara þannig að áhugasamir geta fylgst með leiknum gegnum tölvu. ÍBV berst um silfursætið við Valsstúlkur sem mæta Selfyssingum.
Nú er bara að taka hressilega á norðanstúlkum og ná í silfrið.
ÁFRAM ÍBV.