Sabrína í U-19.

11.sep.2013  09:04
Sabrína Lind Adolfsdóttir var í dag valin í landslið Íslands U-19 í knattspyrnu.  Liðið er á leið til Búlgaríu til að spila í undankeppni EM 2014.  Liðið er í riðli með heimastúlkum, Frökkum og Slóvökum.  Sabrína er ein af fáum stúlkum sem eru valdar af yngra ári liðsins.
 
ÍBV óskar Sabrínu Lind innilega til hamingju með þennan árangur.