Díana Dögg Magnúsdóttir hefur verið valin til æfinga með U-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu sem undirbýr sig af krafti fyrir milliriðil EM sem fram fer í Rúmeníu um næstu mánaðarmót en þar leikur Ísland í riðli með Spánverjum, Írum og Rúmenum.
ÍBV óskar Díönu innilega til hamingju með þennan árangur.