Joni í U-19.

28.ágú.2013  08:50
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp fyrir 2 vináttulandsleiki gegn Skotum sem fram fara 3. og 5. september.  Átján leikmenn eru valdir í hópinn og fara leikirnir fram á Forthbank Stadium í Sterling.  Kristinn sem er fyrrum þjálfari ÍBV valdi Jón Ingason í hópinn en Jonni hefur leikið feykivel með 2.flokki í sumar og einnig þegar hann hefur komið inná í meistaraflokknum.
 
ÍBV óskar Jonna innilega til hamingju með þennan árangur.