Sabrína í U-19 hjá KSI.

22.ágú.2013  15:36
Sabrína Lind Adolfsdóttir var í dag valin í undirbúningshóp U-19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu.  Hópurinn undirbýr sig fyrir undankeppni EM sem fram fer í Búlgaríu í september en Ísland verður þar í riðli með heimastúlkum, Frakklandi og Slóvakíu.
Þjálfarar liðsins eru Ólafur Guðbjörnsson og Úlfar Hinriksson.
 
ÍBV óskar Sabrínu innilega til hamingju með þennan árangur.