Drengirnir í liði 3. í 6.flokki drengja stóðu sig heldur betur vel í gær er þeir nældu í Bronsverðlaun í Íslandsmótinu í knattspyrnu. Drengirnir sigruðu lið HK og KR en töpuðu fyrir sterku liði Keflavíkur. Um bronsið léku þeir svo við lið Hauka og lauk þeim leik 4-4 og samkvæmt reglum KSI teljast bæði lið sigurvegarar í leiknum. Lið ÍBV var skipað eftirtöldum leikmönnum: Dagur Arnarsson(Einsi Kaldi)- Andri Snær(Sigmar Þröstur)- Einar Þór(Jón Óli)- Andrés Marel(Siggi Smári)- Adam Smári(Bjartmar Eyjataxi) og úr Rangárhverfinu voru Hákon- Helgi Valur- Unnar Jón- Tumi.
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.