Á morgunn kl. 18.00 mætir kvennalið ÍBV toppliði Stjörnunnar á Hásteinsvelli í sannkölluðum toppslag. Liðin sitja í tveimur efstu sætum deildarinnar og því verður hart tekið á því á morgunn.
Því miður hefur meiðslalisti ÍBV lengst svo um munar því bæði Ana Maria og Guðrún Bára eru frá í einhverjar vikur. Það verður því hin efnilega Sandra Erlingsdóttir aðeins 15 ára sem mun taka sæti í byrjunarliðinu á morgunn.
Við hvetjum alla Eyjamenn til að mæta á völlinn og hvetja stúlkurnar til sigurs.
ÁFRAM ÍBV.