Stúlkurnar í 2.flokki gerðu sér lítið fyrir og sigruðu lið FH í 8.liða úrslitum bikarsins í gær. lokatölur 2-1. ÍBV byrjaði leikinn mun betur en FH stúlkur og skein eyjabarátta úr hverju andliti. ÍBV komst í 2-0 með mörkum frá Guðrúnu Báru sem leikur sem framherji í 2.flokki. Eyjastúlkur hefðu hæglega getað bætt við fleiri mörkum en markvörður FH sá til þess að svo væri ekki. Undir lok fyrir hálfleiks náðu FH stúlkur að minnka muninn og staðan því í hálfleik 2-1. Í síðari hálfleik var jafnræði framan af en síðustu 15.mínútur leiksins sóttu FH stúlkur hart að marki ÍBV svo oft myndaðist mikil hætta við markið en stúlkurnar stóðu þetta af sér og sigurinn staðreynd. Þegar dregið verður í undanúrslitum verða í pottinum ásamt ÍBV, lið Vals- Breiðabliks og ÍA.
ÍBV óskar stúlkunum innilega til hamingju með þennan árangur.