Kvennalið ÍBV sigraði lið Hattar frá Egilstöðum í 16.liða úrslitum Borgunarbikarsins í gær. ÍBV náði forystu með marki frá Shaneku en leikmenn Hattar jöfnuðu stuttu síðar eftir mistök í vörn ÍBV. ÍBV átti nokkur góð færi til að komast aftur yfir en leikmönnum tókst ekki að skora. Í síðari hálfleik kom Sísí Lára inná og þá gjörbreyttist leikur liðsins. ÍBV gerði þrjú mörk í seinni hálfleik og sigraði 4-1. Shaneka- Þórhildur og Bryndís Hrönn gerðu mörkin. Það verður því spennandi að fylgjast með hverjir verða mótherjar ÍBV í 8.liða úrslitum.
Næsti leikur liðsins er á föstudag er IBV sækir Breiðablik heim.
Mikið er um meiðsl hjá ÍBV en bæði Vesna Smiljkovic, Ana Maria og Nadia Lawrence eru allar frá. Það verður því við rammann reip að draga á föstudag.
ÁFRAM ÍBV.