Íslenska landsliðið U-21 í knattspyrnu etur kappi við lið Armena í dag kl. 15.00. Brynjar Gauti er ekki einungis í byrjunarliðinu heldur einnig fyrirliði liðsins. Mikill heiður fyrir Brynjar sem hefur leikið manna best hjá ÍBV í sumar. Þá er Guðmundur Þórarinsson einnig í byrjunarliðinu en Gunnar Þorsteinsson verður til taks á bekknum.
ÍBV óskar þessum miklu ÍBV drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.