Sigurður Ragnar Eyjólfsson valdi í dag 23.leikmenn fyrir vináttulandsleik sem leikin verður gegn Skotum á Laugardalsvelli þann 1.júní. Elísa Viðarsdóttir fyrirliði ÍBV var valin í hópinn sem kemur saman tveimur dögum fyrir leik. Elísa er vel að valinu komin enda búin að leika vel fyrir ÍBV.
ÍBV óskar Elísu innilega til hamingju með þennan árangur.