Fótboltastelpurnar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu HK/Víking með 7 mörkum gegn 2. á Hásteinsvelli. Það má með sanni segja að byrjunin á heimavelli sé góð eftir slæmt tap gegn Stjörnunni í fyrsta leik mótsins.
Mörk ÍBV í leiknum gerðu þær Shaneka Gordon 3, Bryndís Hrönn Kristinsdótti 1, Ana Maria 1, Bryndís Jóhannesdóttir 1 og Rosie Sutton 1.
Á morgun sækja stúlkurnar heim lið Vals kl. 14.00. Vonandi ná stúlkurnar að fylgja eftir þessum góða sigri.
Við hvetjum alla eyjamenn að fjölmenna á Valsvöll á morgun og hvetja ÍBV til sigurs.
Áfram ÍBV.