ÍBV vann unglingabikar HSI.

12.maí.2013  08:53
Lokahóf HSI var haldið í gær.  Á hófinu er veittur unglingabikar HSI sem er veittur því félagi sem þótti standa best að yngri flokkum á leiktímabilinu.  Að þessu sinni var það ÍBV sem vann þessi stóru verðlaun enda vel að þeim komið þar sem mjög vel er staðið að öllu er varðar yngri flokka.  Eins og mönnum er kunnugt þá eignaðist ÍBV tvenna Íslandsmeistara á tímabilinu ásamt því að eiga fjöldann allan af landsliðskrökkum.
Þetta er mikill heiður sem ÍBV hlotnast með þessum verðlaunum og eiga þjálfarar og allir þeir sem að starfinu koma mikið hrós skilið.

Áfram ÍBV.