Iðkendur ÍBV 14 ára og eldri athugið

22.apr.2013  16:00
Þriðjudaginn 23 apríl verður Vilborg pólfari með fyrirlestur um ferð sína á 
Suðurpólinn. Einnig fer hún á skemmtilegan hátt í markmiðasetningu og leiðir 
til að ná settum markmiðum. Fyrirlestur hennar hefur fengið frábærar viðtökur 
og þykir mjög áhugaverður. 

Vilborg er á ferð um landið í samstarfi við Íslandsbanka með fyrirlestur sinn. 
Þar sem efni fyrirlestursins er afar áhugavert og Vilborg mjög góð fyrirmynd 
fyrir ungt fólk erum við mjög ánægð að fá tækifæri til að hlusta á hana. 
Fyrirlesturinn er fyrst og fremst hugsaður fyrir ungt fólk á aldrinum 14 - 20 
ára en foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir með.
Fyrirlesturinn verður í Höllinni næsta þriðjudag kl. 17:00 (23. apríl)

Ekki verða æfingar á þessum tíma en iðkendur hvattir til að nýta sér þetta 
framtak Íslandsbanka.