Lið 1 hefur spilað í 1. deild síðustu mót og alltaf staðið sig mjög vel. Núna um helgina gerðu þær sér lítið fyrir og unnu 1. deildina og tryggðu sér í leiðinni annað sætið á íslandsmótinu. Þannig að þær komu heim með eitt gull og eitt silfur.
Lið 2 hefur spilað í 3. deild síðustu mót og alltaf verið nálægt því að vinna. Núna um helgina tókst það og unnu þær deildina, nokkuð örugglega og komu einnig heim með eitt gull.
Þetta er öflugur hópur sem gerir alltaf sitt besta og vinnur saman sem ein heild. Allar þessar stelpur eiga framtíðina fyrir sér og hafa alltaf verið sér og félagi sínu til sóma.
Þjálfari þeirra er Elísa Sigurðardóttir.
ÍBV óskar þessum íþróttakrökkum innilega til hamingju!