Davíð Þorleifs skrifar undir og Ragnar Leós framlengir

30.mar.2013  20:25
Davíð Þorleifsson skrifaði undir 3 ára samning við ÍBV í dag en Davíð er 24 ára varnarmaður. Davíð kemur frá KFS en á síðasta tímabili var hann valinn besti leikmaður þeirra. Davíð var fyrirliði í eina A-liði ÍBV sem unnið hefur Shellmótið. Hann hefur spilað mikið á undirbúningstímabilinu og er gríðarlega sterkur varnarmaður.
 Þá skrifaði Ragnar Leósson undir framlengingu á samningi við ÍBV til lok árs 2015. Ragnar á 10 leiki fyrir U-17 ára landslið Íslands og með tvö mörk. Þá á hann einnig 6 leiki fyrir U-19 ára landsliðið. Hann kemur frá ÍA og hefur spilað 69 leiki í meistaraflokk með 10 mörk.