Þær Díana Guðjónsdóttir og Unnur eyjakona Sigmarsdóttir þjálfarar U-17 ára landsliðs kvenna í handbolta hafa valið lokahóp fyrir forkeppni EM. Þar á ÍBV fjóra fulltrúa. Arna Þyrí Ólafsdóttir, Erla Rós Sigmarsdóttir, Sandra Dís Sigurðardóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir voru allar valdar frá félaginu. Þetta er mikill heiður fyrir ÍBV að eiga svona marga fulltrúa í einu liði.
Liðið mun leika þrjá leiki gegn Hollandi, Þýskalandi og Lettlandi. Leikið verður á Íslandi um næstu helgi.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum og þjálfurum þeirra þeim Svavari og Unni innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.