Drífa valin í U-19.

14.mar.2013  14:49
Drífa Þorvaldsdóttir var valin til æfinga með U-19 ára landsliði Íslands í handbolta.  Drífa er vel að þessu vali komin enda búin að spila mjög vel með ÍBV.
Æfingarnar fara fram 18-22.mars og svo verður spilað gegn U-25 ára landsliði Íslands.
Þjálfarar eru Guðmundur Karlsson og Halldór Harri Kristjánsson
 
ÍBV óskar Drífu innilega til hamingju með þennan árangur.